Greinar og pistlar
Þjóðarskömm
Ósjaldan berast Íslendingum fréttir um hversu vel þeir standa sig á ýmsum sviðum. Hér er gott heilbrigðiskerfi, tjáningarfrelsi er almennt virt og við stöndum okkur almennt vel þegar kemur að mannréttindum og virðingu við fólk sem býr hér á landi.
Búum við í sófalýðræði?
Í fyrsta skiptið í langan tíma fór ég í kröfugöngu 1. maí. Ég mætti niður á Strandgötu litlu áður en gangan hófst. Í fyrstu var ég ekki viss hvort ég var mættur á réttan stað á réttum tíma fyrr en ég heyrði í lúðrasveitinni sem hafði staðsett sig á bílastæðinu við bókasafnið. Ég hugsaði með mér „í alvöruni er þetta allt fólkið sem mætir?”.
„Mál málanna“ – Yfirlitssýning Ungra jafnaðarmanna á helstu málum ríkisstjórnarinnar
Næstkomandi föstudag, kl. 16:45, munu Ungir jafnaðarmenn opna sýninguna „Mál málanna“ sem er yfirlitssýning Ungra jafnaðarmanna á helstu málum ríkisstjórnarinnar.
1. maí ræða Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur
Á baráttudegi verkalýðsins er vel við hæfi að við jafnaðarmenn komum saman, fögnum unnum sigrum og lítum til verkefna framtíðarinnar. Ísland er eitt af ríkustu löndum heims, með frábært heilbrigðiskerfi, góð mennta- og velferðarkerfi, mikið landrými og gnótt auðlinda. Við eigum bjarta framtíð en til að treysta og byggja upp hið góða samfélag þarf skýra stefnu, vinnusemi og bjartsýni.
